Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 75
Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.
„Já,“ svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum! Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“
Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum, að láta af þrjósku og hroka. Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum, allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan. Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn! En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi. Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.