Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 74

Guð, hvers vegna hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt? Af hverju ertu reiður? Við erum þó þín eigin hjörð? Mundu, að við erum þjóðin þín – fólkið sem þú forðum leystir úr útlegð og valdir þér til eignar og gleði. Þú útvaldir Jerúsalem sem bústað þinn á jörðu.

Fáðu þér göngu og skoðaðu rústirnar! Sjáðu, óvinirnir hafa eyðilagt borgina og musteri þitt. Þar, já, inni í helgidómnum, æptu þeir heróp, reistu stríðsfána sína og guðamyndir og fögnuðu sigri! Allt er eins og rjúkandi rúst, eins og brunninn skógur. Með öxum sínum og sleggjum hjuggu þeir og brutu allan útskurðinn. Þeir kveiktu í musterinu og gjöreyddu helgidóm þinn, Drottinn. „Þurrkum út allt sem minnir á Drottin!“ öskruðu þeir og brenndu síðan öll samkomuhús Guðs í landinu.

Ekkert er nú eftir sem sýnir að við séum þín útvalda þjóð. Spámennirnir eru horfnir og hver getur þá sagt okkur hvenær þessi ósköp munu enda? Hve lengi ætlar þú Guð að leyfa óvinum þínum að óvirða nafn þitt? Ætlar þú að láta þá komast upp með þetta að eilífu? Eftir hverju ertu að bíða? Af hverju gerir þú ekkert? Ó, rektu þá burt með þinni sterku hendi!

Guð, þú ert konungur minn frá alda öðli. Hjálpar þinnar hef ég notið á öllum mínum ferðum. Þú klaufst hafið með mætti þínum, molaðir haus sjávarguðsins! Eftir skipun þinni opnuðust lindir og þar gat þjóð þín svalað þorstanum. Og þú þurrkaðir fyrir þau farveg Jórdanar, sem annars streymir endalaust. Þú stjórnar bæði nóttu og degi og sólina og stjörnurnar hefur þú skapað. Öll náttúran er á valdi þínu og vetur og sumar eru þín verk. Drottinn líttu á, óvinir þínir spotta þig, ofstopalýður óvirðir nafn þitt!

Ó, Drottinn, frelsaðu mig! Verndaðu turtildúfuna þína fyrir ránfuglunum. Bjargaðu eignarlýð þínum úr klóm varganna. Minnstu loforða þinna! Landið er hulið myrkri og ofbeldismenn út um allt. Drottinn, þjóð þín er kúguð, en láttu hana ekki þurfa að þola þessa svívirðing endalaust. Leyfðu hinum fátæku og hrjáðu að lofa nafn þitt! Komdu, ó Guð, og ákærðu óvini okkar. Hlustaðu á óþverrann sem þessi illmenni ausa yfir þig alla daga! Gleymdu ekki formælingum óvina þinna, þær glymja hærra og hærra.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.