Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 76

Orðstír Drottins er mikill í Júda og Ísrael. Bústaður hans er í Jerúsalem. Hann situr á Síonfjalli. Þar sundurbraut hann vopn óvina okkar.

Öll háreist fjöll blikna í ljóma dýrðar hans! Úrvalslið óvinanna er gjörsigrað! Þeir liggja flatir, sofnaðir svefninum langa. Enginn þeirra getur framar lyft hendi. Þegar þú, Guð Jakobs, hastaðir á þá, féllu bæði hestar og riddarar. Ekki er að undra þótt menn óttist þig! Hver fær staðist reiði Guðs?! Þegar þú birtir þeim dóminn frá himnum, þá nötraði jörðin og þagnaði fyrir þér. Þú stígur fram til að refsa illgjörðamönnunum, en verndar hina auðmjúku. Þegar við sjáum heimsku og reiði mannanna, þá skiljum við enn betur hve dýrð þín er mikil.

Efnið heitin sem þið gáfuð Drottni, Guði ykkar. Allir sem umhverfis hann eru færa honum gjafir. Þeir nálgast hann með óttablandinni virðingu. Hann er sá sem lægir ofstopa höfðingjanna og kemur konungum jarðarinnar á kné!

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.