Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 48

Mikill er Drottinn! Vegsömum hann, já lofum hann! Hann býr á sínu helga fjalli í Jerúsalem. Fallegt er Síonfjall í norðri. Fjallið sem þjóðin elskar, þar sem konungurinn mikli býr.

Drottinn sjálfur er verndari Jerúsalem. Konungar jarðarinnar sátu þar ráðstefnu. Þeir skoðuðu borgina. Þeir urðu agndofa, hræddir og flýðu. Hátign Jerúsalem skelfdi þá. Þeir urðu magnþrota eins og kona sem fæðir barn! Því að með austanvindinum einum tortímir þú heilum her! Dýrð þín, Jerúsalem, er á allra vörum. Þú ert borgin þar sem Guð býr, hann sem ríkir yfir hersveitum himinsins. Við höfum séð hana eigin augum! Guð hefur reist Jerúsalem. Hún mun standa að eilífu.

Drottinn, í musterinu hugleiðum við kærleika þinn. Nafn þitt er þekkt um alla jörðina. Þú ert lofaður um víða veröld vegna hjálpræðis þíns. Vegsemd þín breiðist um allan heim því alls staðar framkvæmir þú réttlætisverk. Gleð þig, Jerúsalem! Gleð þig Júdaættkvísl! Því að Guð mun vissulega láta þig ná rétti þínum. Komið og skoðið borgina! Gangið um og teljið turnana! Lítið á múrinn og sjáið hallirnar og segið komandi kynslóð frá því að slíkur sé Drottinn! Hann mun leiða okkur um aldur og ævi.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.