Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 47

Komið allar þjóðir! Klappið saman höndum af gleði! Hrópið af fögnuði fyrir Guði! Drottinn er æðri öllum guðum. Hann er ógurlegur. Honum verður ekki með orðum lýst. Hann er konungur til endimarka jarðarinnar. Hann hefur beygt þjóðir undir sig og valið úr yndislegt land og gefið okkur, þjóð sinni, Ísrael.

Guð er stiginn upp með miklu hrópi og hvellum lúðurhljómi.

Lofsyngið Guði, konungi okkar. Já, syngið lofgjörðarsöng fyrir konunginn, konung allrar jarðarinnar. Lofsyngið Guði! Hann ríkir yfir þjóðunum. Hann situr á hásæti sínu. Leiðtogar heimsins koma og taka undir lofgjörðina með lýð Guðs Abrahams. Skjaldarmerki þjóðanna eru sigurtákn hans. Hann er mjög upphafinn. Hann er konungur alls heimsins.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.