Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 46

Guð er mér hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið. Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!

Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta. Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar. Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði.

Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa.

Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni. Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld.

„Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu.“

Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.