Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 49
Hlustið nú háir og lágir, ríkir og fátækir. Allir heimsbúar hlýðið á. Ég tala til ykkar vísdómsorð. Með undirleik hörpu kveð ég um hyggindi, veiti svör við spurningum lífsins: Láttu ekki ógæfuna hræða þig, né óvini sem umkringja þig með illsku! Auðæfum sínum treysta þeir og stæra sig af miklu ríkidæmi en þó gæti enginn þeirra greitt Guði lausnargjald fyrir bróður sinn, keypt hann lausan. Sál mannsins er dýrmætari en svo að hún verði keypt fyrir fé. Auður alls heimsins hrekkur ekki til að kaupa einum manni líf og forða honum frá gröfinni.
Þið auðmenn og vitringar og aðrir sem hreykið ykkur hátt, þið munuð farast eins og aðrir menn. Þið hafið enga kröfu til lífsins fremur en fífl og fáráðlingar. Þið verðið að eftirláta öðrum auð ykkar. Hús og eignir bera nöfn ykkar rétt eins og þið ætlið að búa þar að eilífu! Nei, maðurinn verður að deyja. Hann er eins og skepnurnar, þrátt fyrir frægð sína og frama. Slík verða afdrif hinna hrokafullu en samt mun þeirra getið með virðingu þegar þeir eru dauðir.
En þeir fá ekki umflúið dauðann. Þegar upp er staðið verða hinir vondu að þjóna hinum góðu. Vald auðsins er þeim gagnslaust í dauðanum og ekki taka þeir auðæfi sín með sér.
En hvað um mig? Guð mun leysa sál mína frá dauða og frelsa mig úr helju.
Vertu ekki gramur þótt einhver verði ríkur og reisi sér glæsihöll. Ekkert af því mun hann taka með sér í gröfina, ekki einu sinni frægð sína! Í lifanda lífi telur hann sig heppinn og heimurinn klappar honum lof í lófa, en þó deyr hann eins og aðrir og hverfur inn í myrkrið. Sá sem elskar eigin lofstír deyr eins og skepnan, þrátt fyrir frægð sína og frama.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.