Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 140
Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið. Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit. Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum. Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.
Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast. Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt. Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll! Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.
Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi. Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu. Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.