Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 141
Drottinn, þú hefur hlustað á bæn mína, svaraðu mér fljótt! Heyr þegar ég hrópa til þín eftir hjálp. Líttu á bæn mína sem kvöldfórn, eins og reykelsi sem stígur upp til þín.
Hjálpaðu mér, Drottinn, að gæta munns míns – innsiglaðu varir mínar! Frelsaðu mig frá löngun í hið illa. Forðaðu mér frá félagsskap við syndara og þeirra vondu verkum. Láttu mig sneiða hjá svallveislum þeirra. Hirting frá guðhræddum manni er mér til góðs – hún er áhrifaríkt læknislyf! Ég vil ekki hlusta á hrós vondra manna. Ég bið gegn illsku þeirra og svikum. Þegar foringjar þeirra fá sinn dóm, þegar þeim verður hrint fram af kletti, þá munu menn þessir hlusta á viðvörun mína og skilja að ég vildi þeim vel. Drottinn, ég horfi til þín í von um hjálp. Þú ert skjól mitt. Láttu þá ekki tortíma mér. Forðaðu mér frá gildrum þeirra. Hinir óguðlegu falli í eigin net, en ég sleppi heill á húfi.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.