Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 139

Drottinn, þú rannsakar mig út og inn og veist allt um mig. Hvort ég sit eða stend, það veist þú. Og þú lest hugsanir mínar úr fjarlægð! Þú veist hvert ég stefni og þekkir langanir mínar. Og hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það. Þú veist öllum stundum hvar ég er. Þú þekkir orðin á tungu minni áður en ég opna munninn! Þú bæði fylgir mér og ferð á undan mér, leggur hönd þína á höfuð mitt og blessar mig.

Þetta er stórkostlegt! Já, næstum of gott til að vera satt! Hvert get ég farið frá anda þínum eða flúið frá augliti þínu? Fari ég til himna, þá ertu þar, til dánarheima, þá ertu líka þar! Ef ég svifi á skýjum morgunroðans og settist við fjarlæga strönd, einnig þar mundi hönd þín leiða mig og ég finna styrk þinn og vernd. Og þótt ég reyndi að læðast frá þér inn í myrkrið, þá myndi nóttin lýsa eins og dagur! Því að myrkrið hylur ekkert fyrir Guði, dagur og nótt eru jöfn fyrir þér.

Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst. Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég sá dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga – sérhver dagur var skráður í bók þína!

Hugsanir þínar, ó Guð, eru mér torskildar, en samt eru þær stórkostlegar! Ef ég reyndi að telja þær, þá yrði það mér ofviða því að þær eru fleiri en sandkorn á sjávarströnd! Já, ég mundi vakna eins og af draumi, en hugur minn, hann væri enn hjá þér!

Vissulega munt þú, Guð, útrýma níðingunum. Já, burt með ykkur, þið morðingjar! Þeir guðlasta og hreykja sér upp gegn þér – hvílík heimska! Drottinn, ætti ég ekki að hata þá sem þig hata? Og ætti ég ekki að hafa viðbjóð á þeim? Jú, ég hata þá, því að þínir óvinir eru mínir óvinir.

Prófaðu mig Guð. Rannsakaðu hjarta mitt og hugsanir mínar. Sýndu mér það í fari mínu sem hryggir þig og leiddu mig svo áfram veginn til eilífs lífs.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.