Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 138

Drottinn, ég þakka þér af öllu hjarta! Ég vil lofsyngja þér í áheyrn englanna á himnum. Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri, þakka þér elsku þína og trúfesti, og loforð þín sem þú hefur innsiglað með þínu mikilfenglega nafni. Þegar ég bið, þá heyrir þú bænir mínar, styrkir mig og hughreystir.

Konungar jarðarinnar skulu þakka þér, Drottinn, því að allir heyra þeir rödd þína. Já, þeir skulu syngja um verk Drottins, því að mikil er dýrð hans. En þótt Drottinn sé mikill, þá lýtur hann að hinum lítilmótlegu, en hrokafullir halda sig fjarri. Þótt ég sé umvafinn erfiðleikum, muntu sjá um að allt fari vel. Þú réttir fram hnefann gegn óvinum mínum. Kraftur þinn mun frelsa mig. Drottinn mun leysa úr öllum mínum málum – því að Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef mig ekki, því að ég er verk handa þinna.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.