Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 13

Hversu lengi ætlar þú Drottinn að gleyma mér – að eilífu, eða hvað? Ætlar þú sífellt að horfa í aðra átt þegar ég er í nauðum staddur? Hve lengi verð ég að byrgja inni angist mína? Hve lengi eiga óvinir mínir að hreykja sér upp yfir mig? Svara mér Drottinn, Guð minn, og sendu mér ljós þitt, annars er úti um mig!

Þaggaðu niður í óvinum mínum sem segja: „Við höfum sigrað hann!“ Láttu þá ekki hlakka yfir því að ógæfa hendi mig.

En, – ég mun treysta þér og miskunn þinni hvað sem á gengur og fagna yfir hjálp þinni! Ég vil lofsyngja Drottni, því að ríkulega blessaði hann mig.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.