Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 14
En sá heimskingi sem segir: „Guð er ekki til!“ Sá er líka bæði illur og spilltur og einskis góðs af honum að vænta.
Drottinn horfir niður af himnum og virðir fyrir sér mennina, hvort einhver sé skynsamur og geri vilja hans. Nei, það gerir enginn þeirra. Allir eru þeir viknir af leið, allir spilltir af synd. Enginn er raunverulega góður, ekki einn einasti! Þeir kúga og kvelja þjóð mína og dettur ekki í hug að ákalla mig! Skyldu þeir ekki fá að kenna á því illgjörðamennirnir?
Þeir munu óttast þegar þeir sjá að Guð er með þeim sem elska hann. Hann er skjól hinna hrjáðu og hógværu þegar illgjörðamenn ofsækja þá. Ó, að lausnardagur þeirra væri nú þegar kominn! Að Guð kæmi frá bústað sínum á Síon til bjargar þjóð sinni. En sá gleðidagur þegar Drottinn frelsar Ísrael!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.