Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 12

Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta? Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind.

En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti. Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!“ Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra.“ Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull. Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna, þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.