Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 11

Hvernig getið þið sagt: „Flýðu til fjallanna og leitaðu skjóls!?“ Vitið þið ekki að ég treysti því að Drottinn muni hjálpa mér.

Óguðlegir leggja ör á streng, spenna boga sína og miða úr launsátri á lýð Guðs. Menn segja: „Lögin hafa verið afnumin! Hinir réttlátu verða að forða sér.“

En, Drottinn er enn í sínu heilaga musteri. Hann ríkir enn frá himnum. Hann fylgist grannt með öllu sem gerist á jörðu. Hann prófar bæði trúaða og vantrúaða. Hann fyrirlítur þá sem elska ofbeldi. Hann mun senda eld og brennistein yfir illgjörðamennina og svíða þá með glóheitum vindi.

Því að Guð er réttlátur og hefur mætur á góðum verkum. Hinir hjartahreinu munu sjá auglit hans.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.