Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 113
Hallelúja! Þið þjónar Drottins, lofið nafn hans. Lofað sé nafn hans um aldur og ævi! Vegsamið hann frá sólarupprás til sólarlags! Því að hann er hátt upphafinn yfir þjóðirnar og dýrð hans er himnunum hærri.
Hver kemst í samjöfnuð við Guð hinn hæsta? Hann situr hátt og horfir niður á himin og jörð. Hann reisir hinn fátæka úr skítnum, leiðir hinn hungraða frá sorphaugnum og fær þeim sæti með tignarmönnum! Fyrir hans hjálp verður hún hamingjusöm móðir – konan sem ekki gat fætt manni sínum börn. Hallelúja! Lof sé Drottni!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.