Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 114
Í árdaga, þegar Ísraelsmenn flúðu Egyptaland, land hinnar framandi tungu, varð Júda og Ísrael bústaður Guðs og ríki hans.
Hafið rauða sá þá koma og hopaði. Og áin Jórdan, hún stöðvaðist svo að þeir gátu gengið yfir. Fjöllin hoppuðu eins og hrútar og hæðirnar sem lömb! Hvað olli því, þú rauða haf, að þú hopaðir til beggja hliða? Og hvers vegna, áin Jórdan, stöðvaðist rennsli þitt? Og þið fjöll, hvers vegna hoppið þið eins og hrútar og þið hæðir sem lömb?
Nötra þú jörð frammi fyrir augliti Drottins, Guðs Jakobs, því að hann lét uppsprettu opnast á klettinum.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.