Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 112

Dýrð sé Guði! Að trúa á Guð og treysta honum veitir ómælda blessun. Sæll er sá maður sem hefur unun af boðorðum hans.

Börn hans njóta hvarvetna heiðurs, því að góður arfur eflir göfugan mann. Sjálfur býr hann við auðlegð og góðverk hans gleymast ekki. Réttlátum er hann ljós í myrkri – miskunn hans og gæska eru augljós. Sá mun blessun hljóta sem er góðgjarn og fús að lána og framkvæmir verk sín með réttvísi.

Slíkur maður verður ekki fórnarlamb illra atvika. Umhyggja Guðs fyrir honum verður umræðuefni þeirra sem þekkja hann. Hann óttast ekki vondar fréttir, né kvíðir því sem koma skal. Hann er öruggur og veit að Drottinn annast hann. Þess vegna óttast hann ekkert og horfir á óvini sína með stakri ró. Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum. Góðverk hans munu ekki gleymast. Hann mun njóta vinsælda og hafa áhrif.

Þetta sjá óguðlegir og þeim gremst. Þeir munu gnísta tönnum og tortímast og óskir þeirra rætast ekki.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.