Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 99

Drottinn er konungur! Þjóðirnar skjálfi! Hásæti hans stendur miklu ofar englunum. Jörðin nötri í óttablandinni virðingu.

Drottinn ríkir með hátign á Síon, æðri öllum konungum á jörðu. Þeir tigni hans háa og heilaga nafn!

Drottinn er voldugur konungur. Hann elskar réttlæti. Réttvísi og heiðarleiki einkenna stjórnarfar hans. Þannig ríkir hann í Ísrael. Vegsamið Drottin, hinn heilaga Guð! Föllum fram við fótskör hans.

Móse og Aron voru prestar hans og Samúel spámaður hans. Þeir báðu til Drottins og hann bænheyrði þá. Úr skýstólpa talaði hann við þá, þeir hlustuðu og hlýddu fyrirmælum hans. Ó, Drottinn, þú ert okkar Guð! Þú svaraðir þeim og fyrirgafst syndir þeirra.

Tignið Drottin Guð! Tilbiðjið hann í Jerúsalem á fjallinu helga. Hann er heilagur.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.