Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 98
Syngið nýjan söng fyrir Drottin því að hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika.
Hann hefur tilkynnt sigur sinn – birt þjóðunum réttlæti sitt. Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn sá er Guð bjargaði þjóð sinni. Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta.
Syngið Drottni við undirleik hörpu. Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn! Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp!
Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, því að Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.