Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 83

Guð, vertu ekki þögull og afskiptalaus þegar við biðjum til þín. Svaraðu okkur! Já, bjargaðu okkur!

Heyrirðu ekki skarkalann og ysinn í hópi óvina þinna? Sérðu ekki hvað þeir aðhafast, þessir hatursmenn þínir? Þeir eru með ráðagerðir um að tortíma þeim sem þú elskar! „Komum!“ segja þeir, „þurrkum út Ísrael, svo að þeir hætti að vera til og gleymist.“ Þetta var samþykkt af leiðtogum þeirra. Þessir undirrituðu sáttmála um að fylkja liði gegn almáttugum Guði: Ísmaelítar, Edomítar, Móabítar og Hagrítar. Einnig Gebalmenn, Ammon, Amalek, Filistear og Týrusbúar. Assýría hefur líka slegist í hópinn og gjört bandalag við afkomendur Lots.

Farðu með þá eins og Midíansmenn forðum, já eins og þú fórst með Sísera og Jabín við Kíshonlæk og með óvini þína við Endór, en lík þeirra urðu að áburði á jörðina. Láttu höfðingja þeirra falla eins og Óreb og Seeb, foringja þeirra deyja líkt og Seba og Salmúna sem sögðu: „Leggjum undir okkur haglendi Drottins!“

Þú, Guð minn, feyktu þeim burt eins og ryki, eins og hismi fyrir vindi – eins og skógi sem brennur til ösku. Flæmdu þá burt í óveðri, skelfdu þá með fellibyl þínum. Drottinn, láttu þá kenna á andúð þinni uns þeir viðurkenna mátt þinn og vald. Láttu öll þeirra verk mistakast, svo að þeir skelfist og blygðist sín og viðurkenni að þú einn, Drottinn, ert Guð yfir öllum guðum og að jörðin öll er á þínu valdi.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.