Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 82

Guð stígur fram á himnum. Hann segir: „Réttur er settur!“ Síðan birtir hann úrskurð sinn gegn dómurum á jörðu.

Hve lengi ætlið þið, dómarar, að sniðganga réttlætið? Hve lengi ætlið þið að draga taum hinna ranglátu? Kveðið upp réttláta dóma í málum hinna fátæku og föðurlausu, bágstöddu og þjáðu, Losið fátæklingana úr klóm hinna guðlausu! Þið eruð sljóir og fáfróðir og blindir. Þess vegna riðar þjóðfélagið til falls. Ég hef kallað ykkur „guði“ og „syni hins hæsta“, en í raun og veru eruð þið aðeins dauðlegir menn. Þið munuð falla rétt eins og aðrir af höfðingjunum.

Rís þú upp, ó Guð, og dæmdu jörðina. Þú hefur hana á valdi þínu og þjóðirnar eru í þinni hendi.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.