Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 80

Þú hirðir Ísraels sem leiðir þjóð þína eins og hjörð. Þú Guð sem situr á hásæti uppi yfir verndarenglunum, beygðu þig niður og hlustaðu á bæn mína. Láttu veldi þitt birtast í geisladýrð! Leyfðu ættkvíslum Efraíms, Benjamíns og Manasse að verða vitni að því er þú frelsar okkur með mætti þínum.

Dragðu okkur til þín á ný, ó Guð. Líttu til okkar með velþóknun og kærleika, það er okkar eina von. Ó, Drottinn, þú Guð sem stjórnar hersveitum himnanna, hve lengi ætlar þú að draga bænheyrsluna og láta reiði þína haldast? Þú hefur alið okkur á sorg og sút og gert okkur að andstyggð í augum nágrannaþjóðanna sem hæða okkur og spotta.

Drottinn hersveitanna, dragðu okkur til þín á ný. Líttu til okkar með velþóknun og kærleika, annars er úti um okkur. Þú fluttir okkur frá Egyptalandi eins og gæðavínvið, upprættir heiðingjana og gróðursettir okkur í landinu. Þú plægðir jörðina og braust landið, við skutum rótum og klæddum hæðirnar.

Við skyggðum á fjöllin og breiddum úr okkur eins og greinar sedrustrésins, þöktum landið frá Miðjarðarhafi og allt til Evfrat. En nú hefur þú brotið niður múra okkar og eftir stöndum við varnarlausir. Landið hefur verið eytt og er nú orðið að bústað villidýra.

Við biðjum þig, þú Guð hinna himnesku hersveita, komdu og blessaðu okkur. Líttu niður af himni, sjáðu þjáningar okkar og hlúðu að þessum vínviði þínum! Vernda það sem þú sjálfur gróðursettir, einkasoninn þinn! Óvinirnir lögðu okkur að velli og kveiktu í borgunum. Þeir farast fyrir augliti þínu! Styrktu manninn sem þú elskar, soninn sem þú valdir og við munum aldrei snúa við þér baki. Lífgaðu okkur á nýjan leik og þá skulum við ákalla þig.

Drottinn, Guð hersveitanna, dragðu okkur til þín á ný. Líttu niður til okkar og láttu okkur sjá velþóknun þína.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.