Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 79

Guð, – hefur þú ekki heyrt: Heiðingjarnir hafa ráðist inn í land þitt! Musterið hefur verið saurgað og Jerúsalem er rjúkandi rúst! Lík þinna manna liggja á bersvæði og eru fæða hræfugla og villidýra! Óvinirnir hafa stráfellt íbúa Jerúsalem, svo að allt flýtur í blóði. Enginn er eftir til að grafa hina föllnu. Nágrannaþjóðirnar hæða okkur og spotta og ausa svívirðingum.

Drottinn, hversu lengi ætlar þú að vera okkur reiður? Að eilífu? Á vandlæti þitt að brenna þar til öll von er úti?! Úthelltu heldur reiði þinni yfir guðlausu þjóðirnar, ekki okkur! Já, yfir konungsríkin sem ekki ákalla nafn þitt. Það eru þau sem hafa útrýmt þjóð þinni og ráðist inn á hvert heimili. Við biðjum þig: Láttu okkur ekki gjalda löngu drýgðra synda forfeðranna! Miskunnaðu þig yfir eymd okkar, því að við höfum verið troðnir niður í svaðið! Hjálpaðu okkur, því að þú ert frelsari okkar! Hjálpaðu okkur, vegna þíns eigin orðstírs! Frelsaðu okkur og fyrirgefðu okkur syndirnar. Hvers vegna fá heiðnu þjóðirnar að hæða okkur og segja: „Hvar er þessi Guð ykkar?!“ Hefndu ófara lýðs þíns svo að eftir verði tekið! Hlustaðu á stunur fanganna og hinna dauðadæmdu. Sýndu mátt þinn og frelsaðu þá. Drottinn, láttu þá fá sjöfalt endurgjald, þessar þjóðir sem hæða þig og spotta!

Þá munum við, þjóð þín og gæsluhjörð, lofa þig að eilífu og þakka mikilleika þinn frá kynslóð til kynslóðar.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.