Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 6
Æ, Drottinn! Ekki refsa mér í reiði þinni! Miskunnaðu mér því að ég örmagnast. Lækna mig, því að líkami minn er sjúkur. Ég er hræddur, veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ó, Drottinn, reistu mig á fætur, og það fljótt!
Komdu Drottinn og læknaðu mig. Bjargaðu mér í kærleika þínum. Því að ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna. Ég er aðframkominn af kvöl. Hverja nótt væti ég koddann með tárum. Augu mín daprast af hryggð vegna illráða óvina minna.
Farið! Látið mig í friði, þið illmenni, því að Drottinn hefur séð tár mín og heyrt grátbeiðni mína. Hann mun svara öllum mínum bænum. Óvinir mínir munu verða til skammar og skelfingin mun steypast yfir þá. Guð mun reka þá sneypta burtu.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.