Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 5

Drottinn, hlustaðu á orð mín. Heyr þú mína einlægu bæn. Hlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því að ég mun aldrei biðja til neins nema þín. Á hverjum morgni horfi ég til himins, já til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig.

Ég veit að þú fyrirlítur óguðleika og að þeir sem iðka hið illa fá ekki að dveljast hjá þér. Hrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því að þú hatar illgjörðir þeirra. Þú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum.

En hvað um mig? Af náð þinni fæ ég að ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu.

Drottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á að gera, og hvert ég á að fara, því að þeir reyna að blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar. Ó, Guð láttu þá fá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.

En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér. Því að þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.