Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 20
Drottinn sé með þér og bænheyri þig á degi neyðarinnar! Guð Jakobs frelsi þig frá allri ógæfu. Hann sendi þér hjálp frá helgidómi sínum, styðji þig frá Síon. Hann minnist með gleði gjafa þinna og brennifórna. Hann veiti þér það sem hjarta þitt þráir og láti öll þín áform ná fram að ganga.
Þegar við fréttum um sigur þinn, munum við hrópa fagnaðaróp og veifa fánanum Guði til dýrðar, því að mikla hluti hefur hann gert fyrir þig. Hann veiti svör við öllum þínum bænum!
Guð blessi konunginn! – Já, það mun hann vissulega gera! í himinhæðum heyrir hann bæn mína og veitir mér mikinn sigur.
Hinir stæra sig af herstyrk og vopnavaldi, en við af Drottni, Guði. Þjóðir þessar munu hrasa og farast, en við rísa og standa traustum fótum.
Drottinn, sendu konungi okkar sigur! Drottinn, heyr þú bænir okkar.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.