Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 19

Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans. Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins. Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin – einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi. Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið. Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa. Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein. Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang. Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.

Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum. Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.

Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.