Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 149
Hallelúja! Lofið Drottin! Syngið honum nýjan söng. Lofsyngið honum öll þjóðin.
Ó, Ísrael, gleð þig yfir skapara þínum. Þið sem búið í Jerúsalem, fagnið yfir konungi ykkar! Lofið nafn hans með gleðidansi og leikið fyrir hann á bumbur og gígjur.
Drottinn hefur unun af lýð sínum. Hann frelsar hina auðmjúku. Hinir trúuðu gleðjist með sæmd og syngi fagnandi í hvílum sínum.
Lofið hann, þið fólk hans! Framkvæmið refsingu hans á þjóðunum með tvíeggjuðu sverði. Setjið konunga þeirra og fyrirmenn í járn og fullnægið á þeim skráðum dómi. Drottinn er vegsemd þjóðar sinnar. Hallelúja!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.