Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 148

Þið sem búið á himnum, lofið Drottin! Lofið hann í upphæðum!

Lofið hann allir englar, allar hersveitir himnanna. Lofið hann sól og tungl og allar lýsandi stjörnur. Lofið hann hæstu himnar og þú dögg er svífur um háloftin.

Allt sem hann hefur skapað lofi nafn hans, því að þegar hann talaði, þá varð það allt til, hann fékk þeim stað um aldur og ævi, setti þeim lögmál sem þau fá ekki brotið.

Lofið Drottin einnig á jörðu, líka þið skepnur í hafdjúpunum. Eldur og hagl, snjór, regn, vindur og veður öll, – allt hlýði það Drottni. Allt skal þetta lofa Drottin: fjöll og hæðir, ávaxtatré sem önnur tré, villidýr og búfé, höggormar og fuglar konungar og allar þjóðir, höfðingjar og dómarar, piltar og stúlkur, aldraðir og börn. Sameiginlega skulu þau lofa Drottin, því að hann einn er þess verður og dýrð hans er ofar himni og jörðu. Hann hefur gert þjóð sína volduga. Heldur uppi heiðri hinna guðhræddu – lýðs Ísraels, þjóðarinnar sem honum stendur næst. Hallelúja! Dýrð sé Drottni!

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.