Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 122

Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!“

Við erum stödd í Jerúsalem og borgin er full af fólki. Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins. Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins.

Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju. Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum, já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa. Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.