Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 121

Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég fá hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar! Hann mun aldrei láta mig hrasa eða falla. Hann gætir mín öllum stundum og sefur ekki á verðinum.

Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær. Hann verndar þig jafnt daga sem nætur. Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu. Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, já hann varðveitir þig alla daga og að eilífu.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.