Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms
Sálmarnir 63:1
Verse 1 is marked below, with the whole chapter around it. Read from the start
Þennan sálm orti Davíð þegar hann leitaði skjóls í Júdeueyðimörkinni.
Ó, þú Guð minn, ég leita þín! Mig þyrstir eftir þér í þessari skrælnuðu eyðimörk. Ó, hve ég þrái þig! Þegar ég gekk um í helgidómi þínum þá leitaði ég þín, þráði að sjá veldi þitt og dýrð.
Miskunn þín er betri en lífið sjálft! Með vörum mínum lofa ég þig. Ég vil lofa þig svo lengi sem ég lifi, lyfta höndum mínum í bæn til þín. Þá mun sál mín mettast og verða glöð, og munnur minn lofa þig með fögnuði.
Ég ligg andvaka um nætur og hugsa um þig, rifja upp öll þau skipti sem þú hefur hjálpað. Þá fyllist ég gleði, finn mig öruggan hjá þér. Ég vil halda mér fast við þig, og styðjast við þína sterku hönd. Þeir munu sjálfir deyja sem brugga mér banaráð, og hverfa niður til heljar. Þeir munu falla fyrir sverði, verða sjakölum að bráð.
Ég vil gleðjast í Guði! Og þeir sem honum treysta skulu fagna sigri því að munni lygaranna hefur verið lokað.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms. Copyright © Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: Open.Bible. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-11-09.