Skip to content
BibleKenya

Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms

Sálmarnir 62

Ég bíð rólegur og þögull eftir hjálp Drottins. Hann einn er bjarg mitt og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

En hvað um þessa menn sem ásaka mig þegar veldi mitt stendur höllum fæti, vilja mig feigan og ljúga og pretta til að steypa mér af stóli. Þeir tala fagurgala, satt er það, en hata mig í hjörtum sínum! En ég stend þögull frammi fyrir fyrir Drottni og vænti hjálpar hans. Hann einn getur hjálpað. Já, hann einn er bjarg mitt, og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

Öryggi mitt og farsæld er í hendi Drottins. Hann einn er skjól mitt og klettur – þangað kemst óvinurinn ekki!

Þú þjóð mín, treystu Drottni. Segið honum óskir ykkar, hann getur uppfyllt þær! Mennirnir miklast og hrokast í hégóma sínum. Einn þykist öðrum meiri, en hann metur alla jafnt.

Safnið ekki auði með svikum og ránum og treystið ekki illa fengnu fé. Treystið Drottni! Minnist þess aftur og aftur að Drottins er styrkurinn. Já, hjá þér Drottinn, er miskunn og þú launar sérhverjum eftir verkum hans.

Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms. Copyright © Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. Source: Open.Bible. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-11-09.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.