Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 95
Komið! Við skulum lofsyngja Drottni! Hrópum gleðióp til heiðurs kletti hjálpræðisins!
Komum fram fyrir hann með þakkargjörð, syngjum honum lofgjörðarsálm. Því að Drottinn er mikill Guð og æðri öllum sem menn kalla guði. Hann hefur upphugsað djúp jarðar og hannað hin hæstu fjöll. Hann gerði hafið og myndaði þurrlendið, allt er hans! Komið! Föllum fram fyrir Drottni, skapara okkar, því að hann er okkar Guð. Við erum hjörðin hans og hann er hirðir okkar. Ó, að þið vilduð heyra kall hans í dag og koma til hans.
Forherðið ekki hjörtu ykkar eins og Ísraelsmenn gerðu hjá Meriba og Massa í eyðimörkinni. Þar drógu feður ykkar orð mín í efa – sömu menn og sáu mig gera mörg kraftaverk. Þeir freistuðu mín, kvörtuðu og reyndu á þolinmæði mína. „Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð,“ segir Drottinn Guð. „Hjörtu þeirra allra voru langt í burtu frá mér og ekki vildu þeir halda lög mín. Þá hét ég því að þeir skyldu aldrei komast inn í fyrirheitna landið, staðinn sem ég hafði ætlað þeim til hvíldar.“
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.