Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 90

Bæn guðsmannsins Móse.

Drottinn, þú hefur verið okkur athvarf frá kynslóð til kynslóðar. Áður en þú skapaðir fjöllin og jörðin varð til, varst þú, ó Guð – þú átt þér hvorki upphaf né endi! Þú talar – og maðurinn verður aftur að dufti. Þúsund ár eru eins og einn dagur fyrir þér, eins og klukkustund! Við berumst með straumi tímans og hverfum líkt og í draumi. Við erum eins og grasið sem grær að morgni en skrælnar að kvöldi, visnar og deyr. Við föllum fyrir reiði þinni og hnígum fyrir bræði þinni. Þú hefur breitt úr syndum okkar frammi fyrir þér – einnig hinum leyndu syndum – engin þeirra er þér hulin. Reiði þín er enginn leikur. Er að undra þótt ævin sé erfið og dagarnir líði sem andvarp.

Ævi okkar er sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár. En jafnvel bestu árin eru full af mæðu og hégóma. Þau eru horfin áður en varir og við á bak og burt! Hver þekkir ógnir reiði þinnar, og hvert okkar óttast þig eins og ber?

Kenndu okkur að telja alla okkar daga og skilja hve ævin er stutt. Gefðu að við fáum notað hana til góðs.

Ó, Drottinn, hve lengi er þess að bíða að þú dragir reiði þína í hlé og blessir okkur á nýjan leik? Miskunna okkur á hverjum morgni að við megum gleðjast hvern einasta dag. Já, gefðu okkur gleði í stað armæðu liðinna daga. Leyfðu okkur aftur að reyna máttarverk þín svo að börn okkar sjái dýrð þína eins og við forðum.

Náð Drottins Guðs sé með okkur. Hann veiti okkur gæfu og gengi.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.