Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 87
Hátt á hinu heilaga fjalli, stendur Jerúsalem, borg Guðs – borgin sem hann elskar öllum borgum framar.
Vel er um þig talað, þú borg Guðs! Ef ég í vinahópi minnist á Egyptaland eða Babýlon, Filisteu eða Týrus eða hið fjarlæga Bláland, þá hrósa þeir sér sem fæddir eru á þessum stöðum. En mestur heiður fylgir Jerúsalem! Hún er móðirin og gott er að vera fæddur þar! Hann, hinn hæsti Guð, mun sjálfur vernda hana.
Þegar Drottinn lítur yfir þjóðskrárnar, mun hann merkja við þá sem hér eru fæddir!
Á hátíðum og tyllidögum munu menn syngja: „Jerúsalem, uppsprettur lífs míns eru í þér!“
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.