Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 8

Ó, Drottinn Guð, mikið er nafn þitt! Jörðin er full af dýrð þinni og himnarnir endurspegla mikilleik þinn.

Þú hefur kennt börnum að lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm.

Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað – þá undrast ég að þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn. Og líka, að þú lést manninn verða litlu minni en Guð! Krýndir hann sæmd og heiðri!

Þú hefur sett hann yfir allt sem þú hefur skapað, allt er honum undirgefið: Uxar og allur annar fénaður, villidýrin fuglar og fiskar, já, allt sem í sjónum syndir. Ó, Drottinn Guð, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.