Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 70
Bjargaðu mér, ó Guð! Flýttu þér Drottinn, að hjálpa mér! Óvinir mínir sækjast eftir lífi mínu og njóta þess að kvelja mig. Rektu þá burt með skömm! Stöðvaðu þá! Láttu þá ekki hæða mig og spotta. Allir þeir sem leita Guðs skulu fagna og gleðjast. Þeir sem elska hjálpræði þitt hrópi: „Lofaður sé Guð!“ En ég er í miklum vanda ó, Guð! Flýttu þér að hjálpa mér! Þú ert sá eini sem getur bjargað. Drottinn minn, láttu það ekki dragast!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.