Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 65

Ó, þú Guð á Síon, við lofum þig og vegsömum og efnum heit okkar við þig. Þú heyrir bænir og því leita allir menn til þín. Margar freistingar urðu mér að falli, ég gerði margt rangt, en þú fyrirgafst mér allar þessar syndir. Sá er heppinn sem þú hefur útvalið, sá sem fær að búa hjá þér í forgörðum helgidóms þíns og njóta allsnægta í musteri þínu. Með krafti þínum sýnir þú réttlæti þitt, þú Guð, frelsari okkar. Þú ert skjól öllum mönnum, allt að endimörkum jarðar.

Þú reistir fjöllin í mætti þínum, þú stöðvar brimgný hafsins og háreysti þjóðanna. Þeir sem búa við ysta haf óttast tákn þín og austrið og vestrið kætast yfir þér! Þú vökvar jörðina og eykur frjósemi hennar. Ár þínar og uppsprettur munu ekki þorna. Þú gerir jörðina hæfa til sáningar og gefur þjóð þinni ríkulega uppskeru. Með steypiregni vökvar þú plógförin og mýkir jarðveginn – útsæðið spírar og vex! Landið klæðist grænni kápu. Heiðarnar blómstra og hlíðarnar brosa, allt er loðið af gróðri! Hjarðirnar liðast um hagana og dalirnir fyllast af korni. Allt fagnar og syngur!

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.