Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 61
Ó, Guð, heyrðu hróp mitt! Hlustaðu á bæn mína. Því að hvar sem ég fer, jafnvel um endimörk jarðar, þá hrópa ég eftir hjálp þinni. Þegar hjarta mitt örmagnast og ég get ekki meir, þá lyftu mér á klett, hjálpræðisbjargið þitt góða, mitt örugga skjól. Þú ert skjól mitt, háreist borg, ókleif óvinum.
Í helgidómi þínum mun ég búa að eilífu, öruggur í skjóli vængja þinna, Því að þú, ó Guð, hefur heyrt heit mín og uppfyllt óskir þeirra sem óttast þig og heiðra nafn þitt.
Þú munt lengja lífdaga mína og láta ævi konungsins vara frá kyni til kyns. Ég mun lifa frammi fyrir Drottni að eilífu! Lát elsku þína og trúfesti gæta mín, þá mun ég lofa nafn þitt um aldur og ævi og efna heit mín dag eftir dag.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.