Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 56

Drottinn, miskunna þú mér, því að liðlangan daginn sækja óvinir mínir að. Fjandmennirnir ryðjast fram, fjölmennt lið, þeir ætla að drepa mig.

Þegar ég er hræddur, set ég traust mitt á þig. Ég treysti loforðum Guðs og veit því að þessir óvinir munu ekki ná mér, þeir eru aðeins dauðlegir menn! Þeir vinna gegn mér með öllum ráðum og hugsa um það eitt að fella mig. Þeir áreita mig, sitja um mig. Þeir liggja í leyni eins og stigamenn, hlusta eftir fótataki mínu og leggja ör á streng. Þeir halda sig sleppa við refsingu, og komast undan, en Drottinn, láttu þá fá makleg málagjöld, annað er ekki réttlátt.

Þú þekkir alla hrakninga mína og tár, já, þekkir þau með tölu!

Þegar ég hrópa til þín um hjálp, breytist bardaginn. Óvinir mínir flýja! Þá veit ég að Guð er með mér! Hann liðsinnir mér! Með hjálp Guðs mun ég lofa orð hans, já vissulega mun ég lofa orð hans. Ég treysti Guði. Loforð hans eru dásamleg! Ég óttast ekki svikráð mannanna – hvað geta þeir gert mér?! Drottinn, ég vil standa við orð mín og þakka þér hjálpina! Þú hefur frelsað mig frá dauða og forðað frá hrösun og þess vegna fæ ég að njóta ljóss og lífs með þér.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.