Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 54
Sálmur eftir Davíð, ortur þegar menn frá Síf reyndu að svíkja hann í hendur Sál konungs.
Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum! Bænheyrðu mig, því að ofbeldismenn hafa risið gegn mér – heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu.
En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn! Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja.
Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott.
Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.