Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 52

Þennan sálm orti Davíð til að andmæla óvini sínum Dóeg sem síðar tók af lífi áttatíu og fimm presta og fjölskyldur þeirra (sjá: 1. Sam. 22.).

Kallar þú þig hetju?! Þú sem hreykir þér af ódæði gegn þjóð Guðs og herðir þig gegn miskunn hans. Þú ert eins og skeinuhættur hnífur, þú svikahrappur! Þú elskar illt meir en gott, lygi umfram sannleika. Rógburð elskar þú og annað skaðræðistal!

En Guð mun koma þér á kné, draga þig út úr húsi þínu og uppræta af landi lifenda. Hinir réttlátu munu sjá það og óttast Guð, síðan hlægja og segja: „Svo fer fyrir þeim sem fyrirlíta Guð og treysta á mátt sinn og megin, þeim sem þrjóskast í illsku sinni.“

Ég er sem grænt olífutré í garði Guðs. Ég treysti á miskunn hans meðan ég lifi. Drottinn, ég vil vegsama þig að eilífu og þakka það sem þú hefur gert. Ég segi hinum trúuðu: Góður er Guð!

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.