Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 43
Ó, Guð, láttu mig ná rétti mínum gegn svikulum og vondum mönnum sem ásaka mig. Þú einn ert Guð, skjól mitt og vígi. Hvers vegna hefur þú vísað mér frá? Hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum? Sendu ljós þitt og sannleika til að vísa mér veginn að musteri þínu á Síon, fjallinu þínu helga. Þar vil ég ganga að altari Guðs, uppsprettu gleðinnar, og lofa hann með hörpuleik. Ó, Guð, – minn Guð!
Sál mín hvers vegna ertu döpur og kjarklaus? Treystu Guði! Víst mun ég fá að lofa hann á ný, því hann mun hjálpa mér og aftur mun auglit mitt gleðjast!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.