Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 36

Rödd syndarinnar talar í huga guðleysingjans og hvetur hann til vondra verka. Enginn guðsótti býr í hjarta hans. Syndin dregur hann á tálar, mistök hans verða augljós og menn hata hann. Svik og tál eru á vörum hans og hann er hættur að vera hygginn og breyta vel. Á nóttunni liggur hann í rúmi sínu og upphugsar svik, forðast ekki hið illa.

Drottinn, miskunn þín er mikil eins og himinninn og trúfesti þín takmarkalaus. Réttlæti þitt er stöðugt eins og fjöllin. Dómar þínir hvíla á vísdómi, þeir vitna um mikilleik þinn líkt og úthöfin. Þú berð umhyggju fyrir mönnum og skepnum. Hversu dýrmæt er miskunn þín ó, Guð! Mennirnir leita skjóls í skugga vængja þinna. Þú nærir þá með krásum af borði þínu og lætur þá drekka úr lækjum unaðssemda þinna.

Þú, Drottinn, ert uppspretta lífsins! í þínu ljósi sjáum við ljós. Lát miskunn þína haldast við þá sem þekkja þig og réttlæti þitt við þá sem hlýða þér og elska.

Lát ekki fót hins hrokafulla troða á mér né hendur óguðlegra hrekja mig burt. Líttu á! Illgjörðamennirnir eru fallnir! Þeim hefur verið varpað um koll og þeir megna ekki að rísa upp aftur.

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.