Skip to content
BibleKenya

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™

Sálmarnir 30

Ég vil lofa þig Drottinn, því að þú hefur frelsað mig frá óvinum mínum. Þú leyfðir þeim ekki að yfirbuga mig. Ó, Drottinn Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig. Þú hreifst mig burt frá barmi grafarinnar, já úr dauðans greipum, og gafst mér líf og framtíð!

Syngið Drottni lof og þökk, þið sem á hann trúið. Reiði hans stendur stutta stund, en náð hans varir að eilífu! Hans vegna stend ég stöðugur, fastur fyrir eins og fjöllin. Gráturinn sækir að um nætur, en gleðisöngur þegar dagur rís.

Þegar allt gekk mér í hag, hugsaði ég: „Svona verður það alla tíð, nú getur ekkert stöðvað mig framar! Drottinn hefur velþóknun á mér. Hans vegna stend ég stöðugur, fastur fyrir eins og fjöllin!“ Þá snerir þú þér, Drottinn, burt frá mér og hélst aftur af blessun þinni. Skyndilega var kjarkur minn brostinn. Ég varð skelkaður og örvænti um minn hag. Ég hrópaði til þín Drottinn. Já, svo sannarlega ákallaði ég þig! Ég sagði: „Hvers vegna vilt þú Drottinn, koma mér á kné? – leiða mig í dauðann? Þar verður lofsöngur minn til lítils gagns. Hvernig á ég þá, liðið lík, að lofa þig, og vegsama trúfesti þína?! Heyr þú ákall mitt, Drottinn! Miskunna þú mér og sendu mér hjálp þína.“

Þá breytti hann grát mínum í gleðidans! Hann dró af mér sorgarklæðin og færði mig í veisluskrúða! Og þá gat ég lofsungið honum og gleymt ógnum grafarinnar! Ó, Drottinn, minn Guð, hvernig fæ ég fullþakkað þér?

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.

Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.

BibleKenya

Reader settings

Theme
Font
Alignment
Reading width

Saved in this browser and used offline too. Press ? for keyboard shortcuts.