Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 26
Drottinn, láttu mig ná rétti mínum, því að ég hef kappkostað að halda boð þín og treyst þér af öllu hjarta. Rannsakaðu mig yst sem innst, Drottinn, og prófaðu viðhorf mín og einlægni. Afstaða mín til lífsins og allra hluta mótaðist hjá þér. Þú kenndir mér elsku og sannleika. Ég forðast félagsskap hræsnara og þeirra sem tala lygi. Ég hef andstyggð á samkundum syndaranna og stíg ekki fæti þar inn. Ég þvæ hendur mínar, gef til kynna sakleysi mitt og geng að altari þínu með þakkargjörð á vörum, minnugur máttarverka þinna.
Drottinn, ég elska hús þitt – helgidóminn þar sem dýrð þín birtist! Láttu mér ekki farnast eins og syndurum og morðingjum eða þeim sem beita saklausa menn vélráðum og heimta mútur.
Nei, með slíkum á ég enga samleið. Ég geng hinn beina, en bratta veg sannleikans. Miskunna mér og frelsa mig. Opinskátt og í áheyrn allra lofa ég Drottin, hann sem ver mig hrösun og falli.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.