Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 24
Jörðin er eign Drottins og allt sem á henni er, – heimurinn og þeir sem í honum búa. Það var hann sem safnaði vötnunum saman svo að hafið varð til og þurrlendið birtist.
Hver fær að stíga upp á fjall Drottins og ganga inn í bústað hans? Hver fær staðist frammi fyrir honum? Aðeins þeir sem hafa hreint hjarta og óflekkaðar hendur, heiðarlegt fólk sem segir sannleikann. Þeir munu njóta gæsku Guðs, og hann, frelsari þeirra, mun lýsa þá réttláta. Það eru þeir sem fá að standa frammi fyrir Drottni og tilbiðja hann, Guð Jakobs.
Opnist þið fornu dyr! Konungur dýrðarinnar vill ganga inn. Hver er konungur dýrðarinnar? Það er Drottinn, hinn voldugi og sterki, sigurhetjan. Já, opnist þið ævafornu dyr fyrir konungi dýrðarinnar!
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn, sá er ræður öllum hersveitum himnanna, hann er konungur dýrðarinnar!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.