Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Sálmarnir 16
Bjarga mér, ó Guð, því að hjá þér leita ég skjóls. Ég sagði við Drottin: „Þú ert minn Drottinn, þú ert mín eina hjálp.“ Ég þrái samfélag við trúaða fólkið í landinu, á því hef ég alla mína velþóknun. Þeir sem kjósa sér annan guð uppskera þrengingu og tár. Ekki vil ég snerta við fórnum þeirra né nefna guði þeirra á nafn.
Drottinn er arfleifð mín. Hann er fjársjóður minn og fögnuður alla daga! Hann verndar allar eigur mínar. Hann hefur gefið mér unaðsreit að erfð. Ég lofa Drottin sem gefur mér góð ráð. Á nóttunni leiðbeinir hann mér og segir mér hvað gera skuli.
Drottinn hverfur mér aldrei úr huga. Af því að hann er með mér hrasa ég hvorki né fell. Nú fagnar andi minn, líkami og sál því að þú munt ekki skilja mig eftir meðal hinna dánu né leyfa að þinn elskaði rotni í gröfinni. Þú hefur leyft mér að lifa og fagna. Ég mun njóta þeirrar miklu gleði að lifa með þér að eilífu!
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™. Copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Licensed under CC BY-SA 4.0. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Source: eBible.org. Typeset from the source files; no intended changes to scripture wording. BibleKenya is not endorsed by the rights holder.
Full source notice & licence · CC BY-SA 4.0 · SourceEdition imported 2026-10-25.